Heklurnar - kvennakór
Um okkur
Kvennakórinn Heklurnar,
Mosfellsbæ.
Áhugasömum söngfuglum er bent á að senda okkur línu
heklurnar@gmail.com
Heimasíða

25.05.2011 08:52:27 / Stjórn

Starfsárinu 2010 - 2011 formlega lokið

Heklurnar luku starfsárinu í þetta sinn með léttum söng í Lágafellslaug og aðalfundi á Kaffihúsinu að Álafossi. 

Hittumst aftur sælar eftir sumarið, kl. 19:30 í september, takið endilega með ykkur liðsauka.


» 26 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 22:00:29 / Linda

Laxnesstónleikar í Mosfellskirkju 16. nóv. kl. 16

Takk fyrir góða æfingu áðan flotti kórinn minn :) Það er ekki amalegt að tilheyra svona hópi og við lánsamar að hún Björk skuli vera að halda utan um starfið.
Á degi íslenskrar tungu verða lögin sem hér fara á eftir þau sem Heklurnar flytja og Stína Páls mun sjá um flutning á lesnu efni tengdu Halldóri Laxness, innslög á milli laga. Við ætlum að vera mættar þar sjálfar kl. 14 til að hita upp fyrir tónleikana og munið að þetta er kirkjan í Mosfellsdal á leiðinni til Þingvalla :)

                                   Laxness-tónleikar

 


Sönglög við ljóð Halldórs Laxness á “Degi íslenskrar tungu”  þann 16. nóvember ’08 kl. 16:00 í Mosfellskirkju.
 


1.   Vorvísa – Jón Ásgeirsson  / a capella

2.   Hvert örstutt spor – Jón Nordal / a capella

3.   Margur er skauð en skortir brauð -Helgi R. Einarsson / a capella
 

      Með undirleik:

4.   Klementínudans – Atli Heimir Jónsson

5.   Barnagæla – Jón Ásgeirsson

6.   Barnagæla frá Nýja Íslandi – Jón Ásgeirsson

7.   Þar sem háfjöllin heilög rísa – Helgi R. Einarsson
 
8.   Vor hinsti dagur er hniginn – Jón Ásgeirsson

9.   Hjá lygnri móðu – Jón Ásgeirsson

10.  Maríukvæði – Björgvin Þ. Valdimarsson

11.  Maístjarnan – Jón Ásgeirsson


 


» 29 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 17:56:28 / Linda

ATH- BREYTTUR ÆFINGASTAÐUR Á ÞRIÐJUDAG

Þar sem æfingin okkar verður kl. 18 á þriðjudag er salurinn upptekinn fyrir annað.  Hún verður í staðinn í tónmenntastofunni í Varmárskóla.  Sjáumst kátar þá.

» 29 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 13:41:12 / Linda

Framundan í nóvember og desember

Set hér inn dagskrána eins og hún var kynnt, það gerir ekkert til þó við séum aðeins komnar inn í hana.  Breytt verður og bætt við eftir því sem þarf.8)

Þriðjud. 28. okt. Mæting hjá Altröddinni kl. 19:15

Laugard. 1. nóv. Brúðkaup Betu og Gunnars í Háteigskirkju kl. 17:00 / mæting kl. 15:45, vera alveg tilbúnar í æfingu kl.16 - Lög: Rose, Ektamakinn, Maríubæn og Shine a little light

ATH-  Breyttur æfingatími vegna píanistans

Þriðjud. 4. nóv. Kóræfing færist til kl.18:00- 20:00 vegna píanista

Þriðjud. 11. nóv. Kóræfing færist til kl. 18:00 - 20:00 vegna píanista

Sunnud.16. nóv. Laxness-tónleikar kl. 16:00 í Mosfellskirkju

Þriðjud. 18. nóv. Æfing fellur niður v. ferðar kórstjóra til DK

Þriðjud. 25. nóv. Æfing kl. 20:00 eins og venjulega / Æft fyrir aðventumessu

Sunnud. 30. nóv. Messa í Lágafellskirkju kl. 11 / frumflutt jólalag e. Jón Ásgeirsson

Þriðjud. 2. des. Æfing m. jólalögum

Þriðjud. 9. des Æfing m. jólalögum / síðasta æfing fyrir jól nema þið viljið hafa 16. des inni?


Uppákomur í desember verða fáar en mjög líklega syngjum við á Geðdeildinni og kannski Blindravinafélaginu?

» 28 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 07:44:19 / Lína Þ. Jóhannesdóttir

Ljóð frá Eiríki Vernharðsyni til Heklanna


Kvennakórinn

Heklurnar heitar og skínandi,
Eins og stórt hraun sem rennur niður eldfjallið.
Eins og þegar Hekla gýs,
hraunið heitt og skínandi.
Þið geislið af innri fegurð,
góðar í tónum.
Það eru fáir betri en þið,
þið eruð snillingar.

Eiríkur Vernharðsson


» 22 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 16:56:37 / Lína Þ. Jóhannesdóttir

Aðalfundur Heklanna


Sælar Heklur.
Bara að minna á aðalfundinn í kvöld kl. 20.30  hjá Unni að Brekkutanga 36.

Sjáumst,
Lína

» 23 hafa sagt sína skoðun

17.05.2008 19:54:37 / Lína Þ. Jóhannesdóttir

Glaðar Heklur á góðri stund

Söng glöðustu konur í heimi

» 25 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 16:35:36 / Lína Þ. Jóhannesdóttir

Ástin er Diskó, Lífið er PÖNK


Sælar Heklur.
Við Ransý fórum að sjá söngleikinn Ástin er Diskó og lífið er Pönk.
Þetta er sko fyrir þær gellur sem sóttu Hollýwood og eða þær sem áttu það til gerast pönkarar á þessum tíma " 1980 " ;)

Okkur býðst að fara á þessa sýningu fyrir 3000 kr. í staðinn fyrir 3600 kr. ef við erum 20 eða fleiri. Makar og vinir eru líka velkonir til að ná þessum tiltekna fjölda.

Ég og Ransý erum sko sannarlega til í að fara aftur á þennan söngleik. Það eru ýmis dans spor sem við þurfum að ná aðeins betur!! 8) :d 8)

Hvernig líst ykkur á að skella ykkur eitthvert kvöldið??

Endilega látið vita tímanlega svo við fá miðann á góðu verði.

Bestu kveðjur.

Lína Fína sem er næstum allaf að falla á tíma


» 30 hafa sagt sína skoðun

10.05.2008 11:13:52 / Lína Þ. Jóhannesdóttir

Þakk fyrir frábæra samveru í vetur


Sælar allar og takk fyrir frábæran vetur með uppákomum þ.e. æfingum, æfingabúðum, skemmtunum, tóneikum =("opinni æfingu") landsmóti kvennakóra á Hornafirði eða einfaldlega með veru ykkar í kórnum.

Þessi kór er búin að gefa mér meira heldur en nokkurn grunar og vegur félagsskapurinn þar þyngst.

Mér þótti yndislegt að sjá okkar fyrrverandi kórkonur mæta á opnu æfinguna okkar og ennþá yndislegra að vita að þær sakna okkar jafn mikið og við þeirra og að það væri jafnvel inni í myndinni að koma aftur. Það væri frábært að sjá ykkur allar aftur og ég lofa því að mórallinn og húmorinn okkar er með því allra besta sem fyrirfinnst í kórastarfi þótt víða væri leitað.

Við samt alltaf til í að bæta við konum til að gera góðan kór betri. Við leggjumst því að eitt að finna og bjóða konur velkomnar í kórinn okkar sýna þeim og sanna að góður söngur er eitt af okkar vítamínum í lífinu.

Við ætlum að fara á Sólheima 23.mai og ef mig misminnir ekki þá verður hann afi þar líka á þeim tíma. Við verðum í bandi með þá ferð. Ég er á 7 manna bíl þannig að við getum farið á sem fæstum bílum.

Sigríður Þóra er að bjóða okkur að vera með í mjög skemmtilegri uppákomu 14.mai nk. í Iðnó. 
Það er félagsvist til söfnunar fyrir munaðarlaus börn í Tíbet. Húsið opnar 19.30 og stendur félagsvistin frá 20.00 til 23.00
Hafið samband við Sigríði Þóru í sig@koggull.com
Vonandi sér einhver sér fært að fara í Iðnó.

Það er fleira sem við ætlum okkur að gera í sumar. Við ætlum væntanlega að syngja fyrir Eirík Vernharðsson verður fertugur 29.mai minnir mig.


Fljótlega ætla ég að bjóða ykkur heim í smá osta og rauð!! ég meinti kaffi og te eða eða rauðan djús.

Kæru vinkonur nú er komið að minni árvissu vinnu og það er að standa mig sem annar formaður stuðningsmannaliðs fylkis, Club Orange.
Ég er að gefa stuðngsmönnum kaffi og meðlæti í hálfleik og síðan fá leikmenn og fjölskyldur beggja liða mat og næs.
Sem sagt bless í bili, þarf að mæta klukkan 12.

Bestu kveðjur.
Lína


ps: The day after. Fylkir 0 Fram 3
Ömulegasti leikur ever. Ég held ég fari að gefa einhverju öðru liði að borða.


» 22 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 08:26:22 / Linda

Fyrsta gigg sumarsins

Það voru kátar Heklur sem skunduðu heim á leið í blíðskapar veðri seint í gærkvöld eftir vel heppnaða opna æfingu.

Mæting var góð og af svipum áheyrenda mátti lesa að þeir skemmtu sér vel.  Öll lögin af listanum góða voru tekin og tvö til.

Eftir sönginn var boðið til veislu í safnaðarsal kirkjunnar.  Þar var boðið uppá kaffi, nammi, djús og vatn.  Í restina tók Heklukórinn svo eitt lag í viðbót fyrir afa gamla (afa Línu) sem skemmti sér konunglega yfir þessu öllu saman.

Takk fyrir samveruna stelpur, hlakka til næsta giggs:lol:

kv. Linda

» 31 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 14:16:38 / Linda

Hvítt og svart með rauðar slæður

Góð mæting á æfingu í gær.  Æfingin var haldin í Lágafellskirkju.  Eftir smá tilfærslur og snúninga vegna hljóðprófanna, var hafist handa við sönginn.  Eðli málsins samkvæmd voru sungin lög, sem ætlunin er að flytja á opnu æfingunni núna á morgun.  Það er skemmst frá því að segja, að kórinn komst vel í gegnum öll lögin og er tilbúinn í söng fyrir áheyrendur.

Mikil tilhlökkun er í hópnum.  Enda margt að gerast; Opin æfing á morgun, Sólheimar 23. maí og líkklega söngur í afmæli í lok maí.  Bara fjör.

Rætt var aðeins um klæðnað á opnu æfingunni.  Ákveðið var að klæðast hvítu og svörtu og með rauðu slæðurnar.  Held við verðum nú bara flottastar.  Ákveðið var líka að það væri frjálst hvort klæðnaðurinn, undir slæðunni, yrði allur svartur, allur hvítur eða svarthvítur.

Við ákváðum líka að heppilegast væri að við mættum klukkan 18:30.  Hefðum þá góðan tíma til að hita upp röddina og gera Betuæfingar áður en gestirnir koma.

Sjáumst hressar í söngstuði á morgun í Lágafellskirkju :lol:

Bæjó
Linda

» 24 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 22:45:37 / Lína Þ. Jóhannesdóttir

Breytt staðsetning á æfingu



Áríðandi tilkynning


Æfingin á morgun verður í Lágafellskirkju klukkan 20.00

Ekki í Varmárskóla

Svarið á blogginu svo ég sjái að þið hafið séð þessa tilkynningu

Kv. Lína


» 27 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 11:28:53 / Lína Þ. Jóhannesdóttir

Myndir


Sælar allar.

Það er alltaf að bætast við myndir á síðuna okkar og mér þætti vænt um að fá sendar myndir frá ykkur, gamlar eða nýjar.

Það væri líka gaman að fá einhvern annan með í Bloggið til að setja fjölbreyttari og skemmtilegri síðu!!

Jæja sjáumst á morgun á æfingu. Og munið allar að mæta .

Kv.
Lína


» 32 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 08:39:39 / Lína Þ. Jóhannesdóttir

Tónfundur að skella á 8. mai kl: 20.00

:o:o:o:þ:þ:d:d:d
:o:o:o:þ:þ:d:d:d



» 20 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 72487
Klukkan